Úr myndaalbúminu

Seinustu færslur mínar hafa verið frekar niðurdrepandi. Ég held að það vanti meiri liti í lífið þessa dagana og ég fann fallega mynd til að létta þetta örlítið. 

 

Á hverju sumri fer ég í gönguferð með Trimmklúbbi Seltjarnarness (TKS). Þetta hafa yfirleitt verið 5-6 daga ferðir með tjald og allar vistir. Það hefur skapast hefð fyrir því að taka börn með í þessar ferðir og hefur það gengið mjög vel.

Sumarið 2005 gengum við frá Bjallavaði á Tungná, í Landmannahelli, að Landmannalaugum, í Hattver, þaðan í Strútslaug, að Álftavatni og enduðum í Hólaskjóli.

Þarna skartar íslensk náttúra því allra mesta litskrúði sem völ er á. Myndin er tekin í jaðri Torfajökuls og Hattver er í baksýn. Hattver er að mínu mati með fegurstu stöðum sem ég hef komið á. Þetta er fáfarinn staður og þangað kemst maður ekki nema gangandi. Þetta er ein af perlum íslenskrar náttúru sem almenningur þekkir ekki vel. Þær eru margar og þó ég hafi víða farið eru enn margt sem ég á eftir að skoða.

Þessa mynd tók einn göngufélagi minn og er hún í miklu uppáhaldi hjá mér. Bæði vegna náttúrunnar sem mér finnst njóta sín vel og svo ekki síður vegna afkvæmanna sem ég er auðvitað gríðarlega stolt af.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Og horfi maður bakvið afkvæmin þá er litladýrðin ó lýsanleg.

Ragnheiður , 12.4.2008 kl. 19:43

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er hægt að horfa á þessa náttúru lengi, lengi.  Þvílík fegurð sem landið okkar býður uppá.   Sæt börnin þín. 

Anna Einarsdóttir, 12.4.2008 kl. 20:12

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Flottir krakkar í fallegu umhverfi. Og mikið eigið þið gott að geta farið í svona gönguferðir.

Ég reyndi einu sinni, fyrir um 10-12 árum, gekk frá Grunnavík inn Jökulfirði og yfir til Reykjafjarðar nyrðri á Ströndum. Við sigldum svo þaðan með Fagranesinu til Ísafjarðar. Mestallan tímann var ég panikk-kasti vegna lofthræðslu og var svo í margar vikur að jafna mig í bakinu (sem var reyndar ónýtt fyrir), en ég varð samt að prófa og sé ekkert eftir því.

Lára Hanna Einarsdóttir, 12.4.2008 kl. 21:52

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Myndin er afar falleg og krakkarnir stórglæsileg

Solla Guðjóns, 16.4.2008 kl. 00:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband