Bloggari gerir grein fyrir afstöðu sinni

Anna bloggvinkona mín með meiru æsti upp í mér tilburði til leirburðar í gærkvöld. Hún bannaði stuðla á sinni síðu svo ég verð bara að birta þetta á minni. 

Ég geri hér með grein fyrir afstöðu minni til þeirra mála sem að mínu viti bar hæst í umræðunni í seinustu viku.

Kirkjuþing og afstaða kirkjunnar til samkynhneigðra

Vorrar þjóðar kirkju klerkar

af kynvillu þeir ama hafa

þeirra allir svörtu serkar

á sínum kreddum ennþá lafa

 breytt 28.10.07:

Vorrar þjóðar kirkju klerkar

við kynvillu þeir amast

þeirra allir svörtu serkar

á sínum kreddum hamast

 

Þeir hjónur gefa í hjónuband

hjónar einnig böndin hnýta

jafnrétti á langt í land

lofa sumir aðrir sýta

 

Tíu litlir negrastrákar

Bókin er níðkvæði um negra

niðrandi hana ég held

Muggse eftir myndir ei fegra

margt frekar les ég um kveld

Sala áfengis í matvöruverslunum

Fá vilja í búðunum bjóra

bytturnar yfir því fagna

sitja að sumbli og þjóra

síst mun það pöblinum gagna

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú ert skáld.    Flottar vísur..... og öllu betri en flestar, er sáust á óformlegu vísnakvöldi í gær.  Mér finnst gaman að hafa stundum fáar reglur, því þá koma fleiri inn..... fólk sem hefur jafnvel aldrei ort. 

Anna Einarsdóttir, 27.10.2007 kl. 14:13

2 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Þetta er í besta falli alþýðukveðskapur. Verður seint sett í skólaljóðin. Það er líka gaman að óformlegum kveðskap eins og í gærkvöld, skemmti mér vel með tölvuna á maganum, heillaði meira en leiðinlegt sjónvarpsefni. Leikur að orðum.

Kristjana Bjarnadóttir, 27.10.2007 kl. 18:04

3 Smámynd: Fríða Eyland

Alveg frábær afgreiðsla á málum liðinnar viku hjá þér Búbót

Fríða Eyland, 28.10.2007 kl. 01:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband