21.10.2008 | 22:42
"Þú veist hver"
Það hefur ekki tíðkast á Íslandi að stjórnmálamenn eða embættismenn segi af sér störfum þó þeir verði uppvísir af mistökum eða misbeitingu valds. Í fljótu bragði man ég þó eftir tveimur tilvikum:
- Guðmundur Árni Stefánsson sagði af sér sem heilbrigðisráðherra. Ef ég man rétt var það vegna þess að hann hafði útvegað ættingja í starf.
- Þórólfur Árnason sagði af sér sem borgarstjóri vegna þess að hann varð uppvís af því að hafa tekið þátt í eða a.m.k. vitað af samráði olíufélaganna.
Báðir eru í mínum huga menn að meiri fyrir þetta. Hvoru tveggja bliknar hjá glappaskotum "þú veist hvern ég meina" í ónefndum seðlabanka.
Hér eru talin örfá mistök:
- "Þú veist hver" lét í það skína í sjónvarpsviðtali að við myndum ekki borga erlendar skuldir okkar og kallaði með því yfir okkur milliríkjadeilu
- "Þú veist hver" upplýsti í sjónvarpsviðtali um lánskjör til Kaupþings.
- "Þú veist hver" tilkynnti um lán frá Rússum sem ekki var frágengið og er almennt talinn hafa klúðrað að minnta kosti góðum kjörum og skaðað lántökuferilinn.
- "Þú veist hver" skilgreindi ekki til hvers lán sem sótt var um til Seðlabanka Bandaríkjanna, átti að fara og fékkst það lán ekki.
- Ég vek athygli á orðum Jóns Baldvins Hannibalssonar í Silfri Egils sl. sunnudag um að "Þú veist hver" sé að þvælast fyrir á strandstað.
Hér eru ótalin fyrri hagstjórnarmistök "Þú veist hvers" sem seðlabankastjóri og einnig sú staðreynd að hann var áður æðsti ráðamaður þjóðarinnar og á þar röð mistaka sem hafa leitt okkur á þann stað sem við erum nú. Einnig sú óheppilega staða að viðkomandi er fyrrverandi stjórnmálamaður án menntunar í hagfræði.
Fyrir hönd okkar allra hefur "Þú veist hver" orðið að alþjóðlegu athlægi. Á viðskiptavef visir.is fyrr í þessum mánuði er frétt með fyrirsögninni: "Hæðst að seðlabankastjóra á erlendum viðskiptavef". Ég hvet ykkur til að skoða þetta.
Ég frétti hjá vinkonu minni í dag að í Afríkuríkinu Túnis sé Ísland, Seðlabankastjórinn og ríkisstjórn þessa lands aðalumræðuefnið. Vinkona mín á fjölskyldu þarna og gengur umræðan út á að hér séu valdhafar gerspilltir og hér sé eitthvað mikið að hjá valdhöfum.
Á Íslandi eru enn raddir sem segja að við sem andæfum þessum vinnubrögðum ástundum einelti gagnvart "Þú veist hver". Það getur ekki flokkast undir einelti af hálfu borgaranna að fara fram á að valdhafi sem hefur orðið uppvís að glappaskotum sem talin eru hér að ofan segi af sér. Slíkt er eðlileg krafa í lýðræðisríki.
Í ríkjum þar sem spilling ríkir eru slíkar kröfur hundsaðar.
Í hverslags ríki búum við?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:42 | Facebook
Athugasemdir
Sammála öllu er kemur fram í pistli þínum. Samfylkingin veruður að fara hisja upp um sig buxurnar, og koma óhæfum embættismönnum út úr stjórnkerfinu. Kannski var fyrsta vísbendingin í þessa átt að Ríkisstjórnin þorði ekki að ráða´Árna Dýra í stöðu forstjóra Landsvirkjunnar. Eins og var búið að lofa honum
haraldurhar, 21.10.2008 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.