11.6.2008 | 22:26
"Fláður" ísbjörn
Oft kennir ýmissa ambögugrasa hjá fréttamönnum. Nú í kvöld náðu fréttamenn á Stöð 2 nýjum hæðum, margsinnis var sagt að ísbjörninn margumræddi hefði verið "fláður".
Ojæja.
Gott ef hann var ekki líka fláráður.............
Athugasemdir
,,skrældur eða afhýddur...
Óskar Arnórsson, 11.6.2008 kl. 22:29
A.m.k. rúinn trausti til að spranga um í mannabyggð
Kristjana Bjarnadóttir, 11.6.2008 kl. 22:37
Já þeir segja líka ,samkvæmt lögreglunni á Vík í Mýrdal er skortur á skyggni á mýrdalssandi.
jk (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 22:57
Hehe svo var eitthvað annað undarlegt..málsháttur sem bjagaðist herfilega...djö ég vissi að ég átti að skrifa það hjá mér. Það voru líka fréttirnar í kvöld.
Ragnheiður , 11.6.2008 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.