11.2.2008 | 22:15
Lítilsvirðing við kjósendur
Samúð mín undanfarna daga hefur verið með kjósendum Sjálfstæðisflokksins. Ég tel að þeir eigi betra skilið en þá framkomu sem þeirra fulltrúar hafa boðið þeim upp á. Fréttablaðið í dag skýrir frá því að "Forystumenn flokksins hafi ráðlagt Vilhjálmi að taka ekki ákvörðun fyrr en orrahríðin vegna REI málsins sé gengin yfir, þar sem almenningsálitið breytist hratt".
Þar höfum við það. Á mannamáli heitir þetta: "Forysta Sjálfstæðisflokksins telur að kjósendur sínir hafi ekkert pólitískt minni og muni gleyma þessu fljótt". Eða með mínum orðum: "Forysta Sjálfstæðisflokksins telur að fólk sé fífl".
Hvar er virðingin fyrir kjósendum?
Ég hef oft haft áhyggjur að stuttu pólitísku minni almennings. Kannski hefur forysta Sjálfstæðisflokksins rétt fyrir sér. Ég hef í þessu tilfelli meiri trú á kjósendum hans en það.
Tíminn mun leiða þetta í ljós.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Eg mun aldrei gleyma þér..................
Erna Bjarnadóttir, 11.2.2008 kl. 22:50
Þó ég búi ekki í Reykjavík þá er þetta eitthvað sem þjóðin mun aldrei gleima.
Solla Guðjóns, 12.2.2008 kl. 12:22
Eitt það fyrsta sem öllum pólitíkusum er kennt og þeir virðast ekki eiga í neinum vandræðum með að tileinka sér er að "fólk er fífl" og þannig koma þeir fram við það. Stundum er það rétt að við erum fífl en svo sannarlega ekki alltaf. Svo sannarlega eru Reykvíkingar ekki fífl í þessu máli.
Bylgja (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 14:44
Alltaf gaman þegar ég man eftir að kíkja á bloggið þitt Kristjana. Bæði að lesa það sem þér er efst í huga varðandi dægurmálin og ekki síður þegar rifjar upp það liðna.
Áfram með smjörið, kv. Villa
Vilborg (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.