Landkynning sem skilaði sér

Sá um helgina auglýsingu á skjá einum um framhaldsmyndaflokkinn "The House". Hann er víst næsta fimmtudag kl 21.00 að ég held. Í auglýsingunni kom fram (eftir því sem ég best tók eftir) að aðalpersónan var dregin á tálar af unglingsstúlku. Í brotinu sem var sýnt sagði stúlkan eitthvað á þessa leið: "Á Íslandi er það talið eðlilegt að 14 ára stúlkur stundi kynlíf" !!!!!!!!!!!!!!!

Vel getur verið að ég hafi tekið vitlaust eftir, ég vona það svo sannarlega. Verð eiginlega að horfa á þennan þátt, er annars ekki góð í að muna eftir dagskrárliðum. Ef þetta er nú rétt tekið eftir hjá mér: Er þetta afrakstur auglýsingaherferðarinnar um fjörugt næturlíf hér í Reykjavík? Hvaða hugmyndir gera menn sér um íslenskar unglingsstúlkur eftir að hafa séð svona þátt? Getur maður verið rólegur með dætur sínar?

Ég bara spyr. Og................

Hvaða leyfi hafa ferðaþjónustuaðilar til að koma þessu óorði á íslenska kvenþjóð?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband