20.9.2009 | 21:03
Bless moggi
Morgunblaðið er samofið Sjálfstæðisflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur frá því ég fór að hafa skoðanir á stjórnmálum verið í mínum huga flokkaður sem "síðasta sort".
En vegna fátæktar á fjölmiðlamarkaði hef ég stundum um stundarsakir verið áskrifandi að Mogganum. Síðastliðinn vetur hef ég oft vaknað mjög snemma. Þá hefur verið gott að vita af Mogganum í forstofunni ásamt fréttablaðinu, svona til að stytta mér stundir
Ég las oft leiðara Ólafs Stephensen í Morgunblaðinu. Mér féll almennt ekkert illa það sem hann skrifaði. Þó Ólafur sé íhald, þá held ég að hann sé mjúkt og frjálslynt íhald.
Nú hefur Ólafur fengið reisupassann. Eigendunum finnst hann of mjúkur, of frjálslyndur, ekki nógu mikill frjálshyggjupési.
Mín viðbrögð eru einföld:
BLESS MOGGI.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það eru sennilega fáir eins frjálslyndir og frjálshyggjumenn. Hefurðu kynnt þér þá hugmyndafræði? Eða ertu að tala um sósíaldemókratisma þegar þú talar um frjálslyndi? Eins og gert er í henni Ameríku? Rétt er að geta þess að ég er ekki frjálshyggjumaður sjálfur. Ég er íhald og stoltur af því :)
Hjörtur J. Guðmundsson, 20.9.2009 kl. 21:29
Þú er snögg að segja bless, ég ætla að bíða og sjá hver verður næsti ritstjóri
Bylgja (IP-tala skráð) 21.9.2009 kl. 09:20
Og nú er víst búið að ráða nýjan ritstjóra, það er víst ekki líklegt að þú dragir uppsögnina til baka Kristjana mín.
Annars furðulegur leikur hjá mogganum og að mér finnst í meira lagi áhættusamur.
Ásdís (IP-tala skráð) 21.9.2009 kl. 19:51
ég hafði misst af þessari frétt, en fann hana á eyjunni. Mbl.is segir þetta óstaðfest.
Hvað um það, ég sagði áskriftinni upp í dag. Hringdi fyrst í morgun en allir þjónustufulltrúarnir voru uppteknir og eftir dágóða bið gafst ég upp, hringdi aftur eftir hádegi en þá var minna álag.
Verði Mogganum að góðu.
Kristjana Bjarnadóttir, 21.9.2009 kl. 20:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.